Blómapottar

Hér er blómapottur sem ég hef skreytt.  Það er gaman að hafa kryddjurtirnar og sumarblómin í fallegum pottum hvort sem er í garðinum eða garðskálanum.

mosaic pottur


Mósaíkverk unnin með Smalti.

  Karfi

Ég hef verið að gera mósaikmyndir af fiskum, karfa þorsk og ýsu.  Myndinar vinn ég úr Smalti, glertegund sem notuð er í mósaíkverk um allan heim.  Litadýrðin er ótrúlega fjölbreytt og því er mjög gaman að vinna með þetta efni.

ravenna.jpg

Veggskreytingar eins og kirkjulistaverk, sem unnin eru úr Smalti, er að finna víða um heim.  Ég lærði að vinna með marmara og Smalti í skólanum mínum á Ravenna á Ítalíu.  Þar voru mér kenndar aldagamlar aðferðir í mósaíkgerð.  Ravenna er vagga mósaíklistar á Ítalíu en þar er að finna dásamlega falleg listaverk.  Hérna er hluti að einu þeirra, Kristmynd frá 6. öld.

 

Smalti

 

 


Fuglabað

Farfuglarnir eru farnir að streyma til landsins og fuglalífið að lifna við.  Það er kominn vorhugur með hækkandi sól og brátt förum við að huga að garðinum okkar.  Fuglabað

Það kom að því.....

mosaic Á þessari síðu verður að finna fréttir og upplýsingar um það sem ég er að fást við hverju sinni.  Upplýsingar um mosaik og allt sem mér dettur í hug.  Jafnvel mun ég fara út fyrir fagið ef ég er í því stuðinu. 

Það væri gaman að fá viðbrögð ykkar við því sem ég er að gera. 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband